Ég var að hugsa hver væri eðlileg þyngd fyrir meðalstóran fress, húskött sem er eins árs og tæplega níu mánaða?
Málið er að á heimilinu mínu er þvílíkur mórall um að Simbi minn sé orðinn feitur, mér finnst það alls ekki… Hinsvegar er eins og að húðin poki aðeins á maganum…ekki fita heldur eins og að hann hafi verið feitur en hafi misst helling (sem er ekki case-ið samt).

Anyway, ég vigtaði hann fyrir um það bil viku (besta aðferðin er að vigta sig fyrst, og taka hann svo í fangið og vigta sig með hann í fanginu. Aukaþyngdin er þá þyngd kattarins) og hann vóg 5.3 kg.
Kötturinn sem ég átti var hinsvegar 3 kg. :/ Hún var hinsvegar læða…

Demona