Kannski finnst þér það mikið en ekki þegar þú sérð og upplifir persónuleikann. Það er alveg öruggt að þú fáir kelinn, skemmtilegan og fjörugan kött þegar þú kaupir hreinræktaðan Abykött.
Gelding kostar 10.000kr, ættbók 5000kr, bólusetning, ormahreinsun, heilsufarskoðun og örmerking kostar 7000kr. Þá ertu strax komin uppí 22.000kr. Þá eigum við eftir að taka inn í reikninginn mat, sand og umhirðu.
Kannski þarf ég heldur ekki að segja þér frá því að ég flutti inn foreldra þeirra frá Danmörku og Noregi því að stofninn af Abyssiniukisum á Íslandi var orðinn mjög lélegur og það kostaði aðeins 500.000kr. (Innflutingur, einangrun, flugfar, skattar, kaupverð á ketti og fleiri verð sem að ríkið býr til!)
Svo þú sérð að þetta er enginn gróðrastarfsemi, langt því frá. Ég er bara að selja ketti með yndissslegan persónuleika og frábært lundarfar. Fólk sem hefur átt Abykött vill ekkert annað, þeir eru tryggir eins og hundar, leika sér eins og hundar í hinum ýmsu leikjum (henda og sækja), þeir eru fyrstir til þess að bjóða þér góðan daginn og fyrstir til þess að taka á móti þér þegar þú kemur heim. Endalaus ást.. það er besta lýsingin.
kv. Skott.