Hehe, ég og kallinn vorum að fara að sofa um daginn og ég var eitthvað stressuð og fór því að hreyfa á mér tærnar án þess að vera eitthvað sérstaklega að pæla í því. Allt í einu stekkur Malla á mig og við hrökkvum bæði í kút. :D
Nóra gerir þetta síður, en Malla áttar sig alveg á því að þetta er bara leikur, hún treður loppunum undir sængina og stingur nöglunum í mann. Fattar sko að það er ekki sængin sem hún er að veiða :)