Mér langar að spurja ykkur sem hafa farið á kattarsýningu hjá kynjaköttum nokkrar spurningar 1.hvar er sýninginn 2.megi einhverjir koma og horfa á 3.eru þessar sýningar lengi(veit að hún er í 2 pörtum)eða held það ?
Hæ Svörin við spurningum þínum eru: 1.Reiðhöll Gusts, Álalind Kópavogi 2.Allir velkomnir og því fleiri því betra. Kostaði held ég 500 fyrir fullorðna í haust og sennilega eitthvað svipað núna. 3.Rétt er það að sýningarhelgin er tvær sjálfstæðar sýningar ein á laugardag og önnur á sunnudag en það eru sömu kettirnir báða dagana. Sýningarnar verða sennilega eins og í haust opin 10 - 18 fyrir almenning báða dagana en við sýnendur verðum víst að mæta á milli 7 og 8.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..