Það er nú sennilega voðalega lítið hægt að gera, hún er sennilega með æxli í mjólkurkirtlunum, eins og er svo algengt að gerist vegna pillunnar. Henni líður allavega mjög vel og kennir sér hvergi til, rorrar bara til í sínu spiki :) Ég tel allavega að fyrsta merki um að henni væri farið að líða eitthvað illa, væri að hún myndi horast.
Gaman að heyra að þú gast bjargað þínum kisa :)
Frænka mín á einmitt kisa sem fékk gallsteina og varð voða aumur þannig, en það er allt komið í lag núna held ég, fyrir utan það að matseðillinn hans var aðeins ritskoðaður :)