Ég á lítinn sætann fress sem heitir Snúlli. Hann er allgjör dúlla, hann er svartur og hvítur og rosalega forvitinn! Einu sinni vorum við með kveikt á sprittkerti, hann var svo fortvitinn. Hann kíkti oní og það kviknaði í veiðihárunum hans! Við náðum að slökkva eldinn strax en veiðihárin hans sviðnuðu smá, litla greyið. Hann vildi líka fá að sjá hvað væri oní baðkerinu. Svo hann stökk í það, baðkerið var fullt af vatni og hann blotnaði rækilega. Það er sagt að kettir eigi níu líf, ég held hann sé búin með svona sjö. Þetta sannar að hann sé forvitnasti köttur í heimi, ég hef fullt af svona sögum um hann. Hann er svo mikið krútt!