Hún Mía litla var að labba uppi á tölvuborði í dag sem er eiginlega NEI, semsagt bannað, við segjum nei ef það er bannað hún fer að skilja það bráðum… en ok annars það voru svona 4 kerti í svona hring uppá borði svona Krans, hún var eikka að reyna að troða sér framhjá honum og rak eyrað í, það kom brunalykt en það sást ekkert hún leit út fyrir að hafa meidd sig var frekar pirruð og svona. og verða þeir eikka fúlir ef marr rekst eikka í þá, kannski óvart með hendina í hann eða eikka ?
Því hún er bara 2 mánaða sko, og frekar æst á kvöldin og hleypur út um allt og hoppar á mann og marr færir hendina og hún hoppar á hana og meiðir sig, verður hún eikka pisst út í mann ?
svo líka annað ég sat í sófanum og hún sat á hnénu á mér og ætlaði að fara að stökkva á stofuborðið sem hún má ekki, þannig að ég færði hnéð frá og hún stökk á borðið með andlitið og labbaði burt, haldiði að hún hafi verið fúl út í mig ?
segið mér frá eikkerju svona úr ykkar lífi