Skógarkettir eru langskemmtilegustu kettirnir að mínu mati. Þeir eru húsbóndahollir og hafa, líkt og hundar, þörf fyrir einn aðila á heimilinu sem þeir geta tengst nánar en öðrum. Þeir eru heimakærir og þó þeir séu kraftmiklir fara þeir ekki langt frá heimili sínu og svara oftast kalli. Frábærir karakterar og gáfaðir kettir.
Ég held að einmitt núna sé ágætis framboð af kettlingum en ef þú ert opinn fyrir blending veit ég um stórglæsilega skógarblandaða læðu. Hún er yrja (svört, grá og gulbrun/rauðbrún), kölluð Yrja Villimey. Aðstæður fjölskyldu hennar breyttust svo heimiliskisurnar verða framvegis innandyra. Yrja greyið á svo erfitt með að sætta sig við það að eigendur hennar eru að vonast eftir nýju heimili fyrir hana.
Hafir þú áhuga er síminn minn 8666054