Verð að segja ykkur frá mágkonu minni sem er mikil kisukona. Hún hefur nánast aldrei verið kattarlaus á ævinni. Á tvo ketti, högnann Ferró og læðuna Minette. Ferró er útiköttur og Minette er innikisa. Í gær fór öll fjölskyldan út og er þá vaninn að Minette liggur á hjómarúminu þar til fólk kemur heim. En í gær lá hún á ganginum tætt og rifin á eyra! Hafði þá ekki nágrannaköttur ráðist inn um gluggann og Ferró flúið út en Minette lenti í honum. Stór angórublandaður köttur nauðgaði Minette! Allavega reyndi það! Minette var rifin á eyra ,alblóðug og rifin á hliðunum og brunduð útum allan feld! Hártæjurnar útum öll gólf og klóarför eftir parketgólfunum! Ég mátti til með að segja ykkur þetta því ég var svo hissa, hélt að svona gæti ekki átt sér stað. Er sjálf hundakona og veit að tíkur lóða og gefa til kynna þegar þær eru tilbúnar til ástarleikja og læður líka en Minette er á pillunni svo þetta var nauðgun ekki satt? Kær kveðja Anna MAgga.