Kæri hjartgóði lesandi,

Ég og kisan mín erum í þvílíkum vandræðum.
Málið er þannig statt að við fjölskyldan erum að flytja í blokk en það kom óvænt upp að kona í blokkinni er með ofnæmi fyrir köttum og því getum við ekki tekið kisu með. Við erum að skila gamla húsnæðinu okkar núna í kvöld og eftir það er kisan okkar algjörlega heimilislaus.

Ef einhver væri til í að redda okkur eða þekkir einhvern sem getur það þá væri það vel þegið. Sama hvort það væri að veita kisu heimili til langs- eða skammstíma. Bara meðan við þurfum ekki að svæfa greyið.

Þetta er ein sú sætasta kisa sem sést hefur. Hún er 8 ára gömul læða en mjög lítil og nett (sjálfsagt út af því að hún er 1/4 síams). Uppáhaldið hennar er að kúra, mala og láta kela við sig.
Hún er búin að búa með hundi í tvö ár þannig að hún er flestu vön.

Endilega ef ykkur dettur eitthvað í hug (annað en svæfingu eða kattahótel) sendið þá mail á kisaineyd@simnet.is eða hringið í síma 8978104

Kv.EvaQd og kisa