Þú segir að hin læðan þín hafi liðið illa í mánuð á eftir svona aðgerð. Það er algjört undantekningstilfelli að svo fari. Læður eru svona ca. viku að jafna sig, þetta er náttla svolítill uppskurður.
En gerir þú þér grein fyrir hvað þú ert að gera læðunni þinni ? Með því að láta hana eiga oft þá aukast líkurnar á allskonar sjúkdómum. Ekki er hægt að stjórna því að hún eigi aftur eftir ár, náttúrunni er ekki hægt að stjórna. Pillan er gefin einu sinni í viku og þá er bara að gleyma henni ekki.
Eins og þú sérð hér að ofan er ég mjög fylgjandi geldingu/ófrjósemisaðgerð þar sem nóg er til að littlum kettlingum sem vantar heimili.
Kveðja,
IceCat