Mig langar rétt að benda kattavinum á það að í Kattholti hefur hafist nýtt átak til þess að gera úrbætur á ytra útliti hússins. Þeim hefur verið stillt uppvið vegg af Reykjavíkurborg sem heimtar tafarlaust að húsið verði lagað. Það er auðvitað ansi slæmt hvernig húsið lítur út að utan, en inni hafa verið gerðar miklar breytingar.
Kattholt óskar eftir framlögum frá kattavinum til þess að geta látið hendur standa fram úr ermum, en fjárhagur þeirra hefur verið ansi bágborinn.
Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa þeim, er bent á að hægt er að leggja inná reikning hjá Landsbanka Íslands, 0113-26-767, eða láta skuldfæra á greiðslukort með því að hringja til þeirra í síma 5672909.
Margt smátt gerir eitt stórt!