Þetta er jeppi! Hann er á grind, er með hátt og lágt drif og það allt, 5-link gormafjöðrun að aftan, öflugar vélar og með 9.5“ afturdrif!
Eini raunverulegi gallinn sem ég finn er að hann er með sjálfstæða fjöðrun að framan, eins og raunar allir jeppar nema örfáir í dag.
Þessi SAAB er nefnilega bara Chevy TrailBlazer með smá breytingum.
Mér sýnist að það ætti ekki að vera mikið mál að setja hann á 38” og leika sér í snjónum!
Það er meira að segja hægt að fá hann með 100% driflás að aftan frá verksmiðju…