Þetta er nokkurn veginn sami bíll, bara mismunandi yfirbygging og bensínvélin sú sama. Hins vegar ef þú ert að spá í díesel þá er 3L vélin í Runner mikið skemmtilegri en 2,4 í Hilux, en það kemur yfirleitt skýrt fram í verðmuninum á þeim. Þar fyrir utan er þetta bara spurning um hvort þú vilt vera á góðum 5 manna bíl eins og Runner eða hvort þú tekur pallinn á X-cap fram yfir. Hvað drifgetu varðar er þetta meira spurning um hvaða vél þú vilt hafa, 2,4 bensín (sem er til í báðum), V6 bensín (bensínhákur), 2,4 diesel sem er ágæt en máttlaus eða 3L díesel í 4Runner ('94+)