Þú gætir þurft að smíða mótorfestingar upp á nýtt og kaupa þér milliplötu hjá www.advangeadapters.com (minnir að þetta sér urlið, fyrirtækið heitir þetta allavegana) til að tengja við skiptingu. Þeir eru örugglega með kit fyrir þennan bíl.
Það er allt hægt, það er bara spurning hvað menn vilja leggja á sig. Þú gætir þessvegna sett látið GM skiptingu fylgja með ofaní og sett annan millikassa eða tengt hana við þann sem fyrir er (ætli það sé ekki NP203, NP205 eða NP208 í þessu, sama og í Chevy).
Best væri að sleppa við að hreyfa millikassan svo ekki þurfi að hafa áhyggjur af lengd skafta.
Frændi minn átti Ramcharger (var eiturgrænn) með 350 og það dúndurvirkaði.
JHG