Ný skilgreining á tómstundum frá Toyota

Við kynnum næstu kynslóð af RAV4 – nýjan og endurbættan bíl sem fylgir RAV4 hefðinni með því að ögra öllum væntingum og hefðum.
Allt frá straumlínulagaðri yfirbyggingunni til fjölda tækninýjunga er RAV4 fágaðri, fjörugri og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærsla er í boði, þar á meðal hin íburðarmikla RAV4 VX, sem teflir saman framúrskarandi snerpu og afburðaþægindum í akstri sem er svo skemmtilegur að hann skilgreinir jeppaakstur algjörlega upp á nýtt. Að ógleymdum sjálfum tómstundunum.

Ný skilgreining á tómstundum innandyra
Lífið bíður þess að þú njótir þess. Og í RAV4 kviknar þessi tilfinning um nautn um leið og þú sest við stýrið. Einstök fegurð innréttinganna ásamt vönduðum frágangi og næmni fyrir smáatriðum fær þig til að spyrja af hverju allir jeppar geti ekki verið jafn fágaðir og þessi.

Enn fágaðri er þó aksturinn sjálfur: Mjúkur, hljóður – og sætin eru svo þægileg að það er erfitt að trúa að þú sért ekki í lúxusbíl.

Ný skilgreining á afþreyingu utandyra
Fjörið er ávallt á næsta leiti, þökk sé hinu háþróaða Integrated Active Drive System í RAV4. Kerfið fylgist grannt með veginum og skerpir aksturseiginleikana og veitir aukna stjórn. Þetta þýðir að hvert sem þú ferð og hvað sem þú gerir fer RAV4 létt með allar beygjur, sveigjur og brekkur, sem veitir meiri stöðugleika, meiri lipurð og það sem skiptir kannski mestu máli, meiri akstursánægju en þú hefðir getað ímyndað þér…..

Verð bara að segja fallegur bíll…..