Ég er með svona vél í mínum Wrangler. Það besta við hana er hvað hún vinnur laaaangt niður á lágsnúning. Það er alveg hægt að keyra hana niður í 500 snúninga án þess að drepa á henni! Mín er að vísu komin með innspýtingu þannig að hún er fleiri hestöfl en þau eru frekar sjaldséð með original blöndungnum.
Það er síðan alveg hægt að ná þessum vélum vel upp fyrir 200 hestöflin (um 110-120 original!) með innspýtingu, heddi af 4.0L, öðrum knastás, kveikju og svo framvegis. Ég er ekki alveg viss hvað mín er að eyða, ég mældi hana einu sinni í 22 lítrum en það var á 38“ með hlutföll fyrir 35” og níðþungan bensínfót… Ætli ég mæli hann ekki aftur bráðlega á 35 tommunni.