ég er með Willys 36" (ekki slitnum) og 350. drífur hættulega mikið. ég myndi ekki fá mér svona bíl sem byrjandi. þetta er minn fyrsti jeppi´, og mörgum tilfellum hefur klaufaskapurinn og of mörg hestöfl orðið mér og greyð jeppanum að bana, hef samt aldrei oltið honum, en ég þakka nú bara yndislega langri gormafjöðrun fyrir það, ef hann væri á fjöðrum þá væri ég löngu farinn að tala mitt eigið tungumál og þyrfti aldrei að skeina mér sjálfur, ef ég væri ekki bara dauður.
´held semsagt að svona willys fari flest allt:)
kveðja Stefán Dal