Hvernig virkar amerískur ofurgírkassi með sjálfskiptingu? Síðast þegar ég vissi, þá voru gírkassar ekki sjálfskiptir. Sjálfskipting er bara sjálfskipting og gírkassi er alltaf beinskiptur. Það væri ráð að athuga slíkt áður en búin er til könnun með slíkum rangfærlum.<br><br>Stand´ann!!
Ég fattaði það ekki (og er það þunnur að ég næ þessu ekki enn) en einhverjir virðast hafa fattað það (allavegana hafa þeir valið þann möguleika). Ég valdi “sjálfskiptur”, en hún er þó amerísk (ofur) skipting :)
Einu sinni var ég að gæla við þá hugmynd að hafa gírkassa aftan við sjálfskiptingu. Þá var hugsunin sú að geta fengið allskonar niðurgírun á hana en vera með þægindi sjálfskiptingar. Þetta hefði þýtt allskonar mix, en ef viljinn og skortur á skynsemi er fyrir hendi þá er allt hægt. Á endanum fór ég svo á amerískan jeppa með helling af afli og lagði alla svona drauma á hilluna.
ég veit ekki með ameríska ofurgírkassa með sjálfskiptingu en margir MAN trukkar er með skiptingu sem ég væri til í að sjá í jeppa en held að það sé ekki búið að hanna neina nógu netta ennþá þær eru þannig að þú getur skipt um gír eins og venjuleg en svo geturðu líka bara sett í gírinn sem þú vilt enda í og hann skiptir sjálfur eins og í sjálfskiptingu þangað til að gírnum er náð svo er það líka að þú þarft bara að kúpla einusinni þegar þú setur hann í gír og ef þú bremsar niður þá þarftu ekki að kúpla hann gerir það sjálfu
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..