Já, það er spurning. En það er til svo gríðarlegt magn af 9 og 8.8" hásingum að úrvalið af drifhlutföllum í þeim ætti að vera ansi gott. En hvaða hlutföll eru í bílnum núna?
Í þínum sporum myndi ég spjalla við einhverja kalla sem eiga eitthvað af hásingum og sjá hvað þeir eiga og hvað það kostar.
Prófaðu að tala við Ragga í jeppahlutum. Það er partasala úti í Hafnarfirði, hann hefur reynst mér mjög vel og verið sanngjarn. Númerið hjá honum er: 5556777 og 8924642. Mig minnir að hann eigi eitthvað bronco-dót.
Svo er líka þess virði að spjalla við vöku, eða Jeppapartasöu Þórðar. Þeir hafa reyndar aldrei átt neitt sem mig hefur vantað, en láttu á það reyna.
Og ef allt bregst, eða ef þú vilt leita mjög vel, prufaðu þá að auglýsa eftir hásingu á f4x4.is . Menn eru duglegr við að svara slíkum auglýsingum þar.
vonandi gengur þetta, kveðja, Andri<br><br>Stand´ann!!