Bahahah þessi var góður..nú sjáðu elsku paranoiaði kallinn minn það er e-ð til sem heitir að fíbblast! Þessi póstur þinn gaf til kynna eða allavega ég las greinina þannig að þetta væri óþroskaður einstaklingur(sem er mikið um hérna) að viðra eina af sínum skemmtilegu hugmyndum…þannig að ég fíblaðist líka og gaf þér gott svar að mínu mati.
Ég meina þú skrifaðir “hey ég ætla að setja 6 hjóla Lapplanderinn minn á 49” dekk! Hefur e-r prófað þau?“…jæja þá kallinn ætlar að setja 6 stk 49” á tja ekki lengri en á að giska 3.5m langan bíl! Nei sjáðu ég á Patrol og hann er lengri en allavega allir Lapplanderar sem ég hef séð, og ég get ekki ímyndað mér að hægt sé að keyra svoleiðis stykki!
Kannski skiluru núna af hverju ég svaraði þér svona? En jæja mér er sosem skítsama hvað þér finnst, ég meina hvað veit ég? ég á Patrol…þeir eru nú svo ótrúlega heimskir í ykkar augum… öll þessi þægindi sem þeir búa yfir gera þá bara veruleikafirrta. Með sín krómuðu kindabana, rafstýrðum rúðum, samlæsingar, über díselvél, intercooler, leðursætum, 4 glasahöldum, hallamæli, hæðarmæli, hraðamæli, snúningsmæli…það er ekki furða að ég komi með svona “ómálefnanlega ræðu” af því að mér fannst að setja 4 49" dekk undir Volvo furðulegt! Ekki það að gera e-ð öðruvísi sé verra en e-ð annað. En fyrirgefðu kallinn minn ég skal passa mig á þessu í framtíðinni!
kv, Geiri KlikK
Patrol