Ég verð að vera sammála Isan í þessu. Það skilja það kanski ekki allir en þegar þú reynir að bjóða frúni uppí hálf-fokhelt kúlutjald á hjólum þá fær maður ekki falleg svör tilbaka. Og ég tala nú ekki um ef það á að keyra í fleiri klukkutíma til að komast uppá langjökul eða álíka. Ég er ekki að segja að allar konur séu svona, eflaust eru þónokkrar sem hafa gaman af þessu sem Hardcore sporti en ég held að öllum vilji líða vel á ferðalaginu.
Ég átti einusinni blæju fox á 33" og eina skiptið sem konan mín fór uppí hann var til að keyra með mér niður á bílasölu til að kaupa nýjan bíl handa henni, og hún fór ekki með mér heim í foxinum. En mér fannst hann samt kúl bíll og var bara í kuldagalla ef að miðstöðin hafði ekki við.
En þetta breytist með tímanum, þeimur lengur sem maður er í þessu þá vill maður meiri lúxus en það má samt ekki fórna öllu fyrir hann því þá endar maður á BMW X5 eða Benz M320, og reynir að telja öllum trú um það að hann sé sko alvöru jeppi.<br><br><b>Tilvitnun:</b><br><hr><i>A Toyota may rust (eventually),but a Patrol falls apart long before it gets a chance to!</i><br><h