Mér finnst þetta mep eindæmun skrýtið. Þegar menn eru far-nir að skrifa sér greinar um það hvað þeim finnst takmarkað varið í boðskap einstaka aðila.
ÞETTA ER JEPPADELLUSÍÐA!!!
Auðvitað eru menn mis-ekki sammála um ákveðin atriði en ef við værum allir sammála um allt þá væri þessi síða líka óþarfi. Hinsvegar kynnast menn líka frá ýmsum aðstæðum og meta sína þekkingu út frá sinni reynslu. Og þá má með sanni segja að það sé enginn endilega heimskari en annar, bara með mismikla reynslu og mismunandi.
Ég beini mínum tilmælum til þín GeirH!
Sá sem nefnir sig Partytruck á þessari síðu hefur staðið sig vel í sínum pistlum og kyndir oft á skemmtilegann hátt umdir hæfilegu fjaðrafoki hérna, en á hinn boginn ert þú, með þessum skrifum eins og hvolpur að gelta í tígrisdýrahóp. Þú hefur áreiðanlega ekki hundsvit á jeppum, bílum eða nokkru sem mótor knýr og þú ættir ekki að láta sjást eða heyrast til þín innan síðna áhugamálsins. Á þessum vef skrifask menn og konur líka á til að fræðast um jeppa og annað tengt og fræða aðra á því sem þeir lenda í. Hérna má finna skrif um allt milli himins og jarðar sem tengist jeppum t.d. ferðir. leiðir breytingar mynstur dekkja og fleira. Ef menn geta ekki tekið þátt í þessum skrifum eða finnst þau heimskuleg þá er sjálfasagt að skrifa um það , en það að ráðast á einstaka aðila er aumingjaskapur af verst sort.
Kv Isan