Þú ættir að rúlla við hjá honum Ingva Stúdent (man ekki hvað fyrirtækið heitir) sem er við hliðina á Bílabúð Benna. Ég keypti af honum kanta á Blazer fyrir 44" á mjög góðu verði (og þar áður á súkku fox á ennþá betra verði).
Ingvi treystir fólki og hann er yfirleitt tilbúinn til að lána hálft sett án tryggingar þó að hann þekkji viðkomandi ekki neitt. Hann sagði mér að það væri aðeins hálft sett sem væri ekki búið að skila sér en það ætti eftir að koma :)
Láttu engan plata þig til að kaupa hálft sett til að máta. Það eru/voru menn í þessum bransa sem eru aðeins tilbúnir til að borga hálft verð til baka.
FÆ þá á partasölu. skikkalega vel farna fyrir 15 kall. Spartsla og sprauta og þá verða þeir fínir. Þeir eru reyndar fyrir 44" en mér sýnist að þeir muni líta ágætlega út þrátt fyrir það.<br><br>Daðmundur hinn spaki
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..