Sammála þessu, þetta eru léttir og skemmtilegir jeppar. 2,4 bensínvélin á að vísu fullt í fangi með að snúa 38" dekkjum en hefur þetta alveg og með 5,71 hlutföllum er þetta allt í lagi. Brjóta lítið því það er gott samræmi í krafti og styrk, þ.e. drif, öxlar og liðir eru vel sterkir miðað við aflið í bílnum. Ef menn setja stórar kraftmiklar vélar ofan í húddin er hins vegar meiri hætta á að eitthvað brotni í átökum Sammála þessu með eyðsluna, 15-17 lítrar en getur farið allt niður í 12 l við bestu aðstæður.