Þú gætir haft rétt fyrir þér, ágæti læknir; upptökur hans af laginu My Funny
Valentine eru heimsfrægar og munu ávallt skipa sess í sögu djassins og dægur-
lagatónlistar. En ég hef á tilfinningunni — þvert á skoðun Charlie heitins Parker —
að Baker hafi verið dálítið ofmetinn sem trompetleikari. Hann var án efa ekki sá
frægasti, en frægur var karlinn þó, og hann komst líklega eins langt á trompetinum
og raun var, vegna þess að hann gat sungið.