Það er nokkuð til í því sem C41 talar um að það vanti fleirri upplýsingar í sumum flokkum, á síðunni eru nokkrir flokkar sem hægt er að velja um og þar að uppfæra þá alla reglulega, þetta er mikil vinna og mikilvægt að nota tímann vel - eitthvað sem ég þarf að læra - Reynt verður að setja inn vetraríþróttir fljótlega og einhverjar gagnlegar upplýsingar í leiðinni. Við erum að tala um íþróttir eins og t.d. ísklifur, snjóbretti, snowcross, vélsleða, jöklasport, og fleirra skemmtilegt og tilfallandi. Svo er auðvitað ýmislegt annað að gerast sem fjallað verður um að bestu getu. Við viljum hvetja alla sem hafa einhverja skoðun á einhverju að hafa samband og láta í sér heyra. Við erum alltaf til í að virkja nýjar hugmyndir og taka við skemmtilegum myndum og fróðleik.
Heyrumst
www.adrenaline.is