Jæja, er að spá í að hjálpa til við að glæða þetta áhugamál lífi. Mér datt sem sagt í hug að setja af stað triva keppni sem afmarkast af einum flytjanda eða hljómsveit. Og mér dettur svona í hug að láta triviuna standa í svona 20-30 spurningar eftir áhuga og sá sem sigrar þessa keppni kæmi svo með aðra alveg eins nema þá með öðrum tónlistarmanni.
Ég ætla að byrja á Bubba Morthens og henda fram fyristu spurningu:
Hvaða ár má segja að Bubbi hafi formlega orðið sköllóttur. Þ.e. rakað af sér allt hárið?
Koma svo verið dugleg og reynum að gera eitthvað smá fjörugt. Ný spurning kemur þegar svar hefur fengist við þessari!