Tónleikasyrpa Grapevine og Smekkleysu er enn í gangi.
Fimmtudaginn 28. júlí á BAR 11 munu hljómsveitirnar ASTARA og Hölt Hóra koma fram og verða þetta án efa sveittir tónleikar með vænum skammti af reyk og bjór.

ASTARA gaf út seint á síðasta ári Ep plötuna “Alright Alright Alright” og
Hölt Hóra gaf nýverið út plötuna “Love Me Like You Elskar Mig.”
Ég held að það sé óhætt að segja að plöturnar verða fáanlegar á góðu verði á tónleikunum.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl 21:30 og er frítt inn.

www.astaragroove.com
www.holthora.com