úff ég veit ekki hvort mig eigi að hlakka til eða vera svekkt o.O Þegar maður er að lesa þessar bækur þá ýminda maður sér rödd við hverja manneskju og útlit við lýsingarnar og bara hvernig persónurnar eru, það er eins og það sé bara bíómynd í hausnum á manni þegar maður er að lesa, þættir gætu skemmt allt. Svipað og nýju coverin á bókunum sem eru hræðileg!
íslenska kvikmyndafyrirtækið pegasus er framleiðandi af þessu já, en þetta verður held ég samstarfsverkefni milli fleiri landa. held þetta verði snilld! elska þessar bækur, þekki ágætlega manneskjuna sem stendur fyrir þessu öllu og ég held hún eigi eftir að gera þetta frábærlega! enda trylltur aðdáandi ísfólksins….
myndi þá vera tekið upp á Íslandi?? og yrði það á íslensku eða?? Ég vona allavega að þetta fari að koma :D Mig hlakkar ekkert smá mikið til og þess vegna vona ég að það sé ekki hætt við að gera þetta!! En yrði þá ein bók einn þáttur??
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..