jaaa sko það er betra að vera búinn með ísfólkið þegar maður les galdrameistarann og betra að vera búin með ísfólkið og galdrameistarann þegar maður les ríki ljóssins það er svona já tenging á milli bókaflokkanna
Galdrameistarinn er ekki framhald af Ísfólkinu - þótt það séu einhverjar óljósar tengingar. Ríki ljóssins er hins vegar framhald af bæði Galdrameistaranum og Ísfólkinu og tengir þessa tvo bókaflokka saman.
Einhverjir ísfólkslingar koma fram í Galdrameistaranum en ekkert sem skiptir máli þannig, þú þarft hinsvegar að vera búin að lesa Galdrameistarann til að lesa Ríki Ljóssins. Ég held að það sé gáfulegast að lesa Ísfólkið, Galdrameistarinn og svo Ríki Ljóssins.
Ég náttla rústaði þessu og byrjaði á Galdrameistaranum og las svo Ríki Ljóssins og svooo Ísfólkið og vissi þess vegna ýmislegt um Ísfólkið sem ég átti ekkert að vita :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..