Þetta var nú ekkert sérstaklega vel orðað hjá þér, en ég held samt að ég hafi skilið þig rétt.
Ég uppgötvaði Ísfólkið löngu á undan Harry Potter. En núna skiptist ég eiginlega á að endurlesa Harry Potter og Ísfólkið. Get ekki gert upp á milli bókanna og er jafn mikill “fan” í báðum flokkum.
Hvað varðar aldur þinn, þá held ég að þig skorti þroska til að skilja allar tilfinningarnar á bak við persónurnar og bækurnar yfirleitt, nema, eins og einhver sagði hér fyrir ofan mig, þú sért einstaklega bráðþroska. En annars kemur það seinna. Það er alveg hægt að hafa gaman að bókunum þrátt fyrir það held ég. Persónulega er ég samt mjög þakklát fyrir að hafa skilið allt í fyrsta skiptið…