Smá spurning. Er það ekki svindl að nota fullbright skin? Allaveganna þegar ég labbaði framhjá ZooM á skjálfta voru skinnin sem þú og Runner notuðuð voru svo björt að ég fékk ofbirtu í augun. Svo held ég að það sé nú einum of að fullyrða að menn séu að svindla þótt að þeir séu heppnir með einhver frögg eða kunni að nýta sér hljóðið. Þetta með hljóðið held ég nú að sé líklegast ástæðan fyrir þvi að menn viti staðsetningarnar á mönnum, allaveganna hlusta ég mjög vel á það sem gerist í kringum mig og treysti oft á hljóðið til að finna andstæðinginn. T.d. hjá nikucz ef þú hefur verið að hlusta vel heyrðist það greinilega að Cr1m var að hlaða mp5 inni í húsinu hægra megin, allaveganna heyrði ég það og hefðið stormað beint á hann og hjá Analpain, ég fer alltaf þarna inn til að tékka á því hvort einhver sé þar enda yfirleitt auðvelt fragg. Ef þú ætlar að benda á einhverja spilara svona og sverta nafn þeirra verðurðu nú að koma með meiri sannanir en eitt stutt demo sem sýnir eitthvað sem gæti verið bara skill eða heppni. Hefðir kannski mátt specca þá aðeins meira kannski og reynt að sjá betur hvort þeir væru að svindla. Eitt sem ég skil ekki hjá þér Gulag og það er hvers vegna þú ferð aldrei með þessar svindl uppgvötvanir þínar og talar við server admin um þær í stað þess að skella þessu á korkinn og benda á hina og þessa og sverta nafn þeirra í leiðinni. Allaveganna þegar ég sá að það var hægt að nota ratbottinn á AQ serverunum fór ég með það í admin en ekki á korkinn, ég prófaði bottinn því að ég trúði því ekki að það væri hægt að nota hann á skjálfta serverum eins og þú sagðir. Þú sagðir t.d. að það væri hægt að komast fram hjá reconnectinu en hefurðu rætt við JBravo eða annan server admin?
Ég veit að þessi svindl eru til, fór nokkrum sinnum Barrysworld forum og þar var mikill umræða um “Spiked Models” eins þau kallast en mér datt ekki í hug að einhver væri að nota þetta hérna, allaveganna kann ég ekki að gera þetta og hef ekki áhuga á því. Ég spila ekki til að fragga heldur til að hafa gaman af því að spila. “menn geta sjálfsagt verið á allt öðruvísi IP tölum á Lani en þó held ég ekki,,, kannski að síðasta talan breytist.” Hefði ekki verið betra að spyrja einhvern sem veit meira um þetta en að fullyrða eitthvað því þú virðist ekki mjög öruggur á þessu. Varla að maður þori að spila lengur af ótta við að demo af manni lendi á netinu þar sem maður er úthrópaður svindlari og aumingi. æi ég er búinn að tala nóg.
Booger[mAIm]
Doesn't cheat