ég hef verið að lesa þessa þræði aðeins,, þetta eru bara old news fyrir mér, það er málið.
Ég hef sagt í langan tíma að svindl er notað á AQ serverunum og er enn notað af merkilega mörgum, þarna kom einhver og viðurkenndi greinilega óvart að hann hafi notað það og hvað? er hann bannaður af serverunum? neeeiii… ef þetta væri CS þá væri búið að tjarga hann og fiðra og senda niður á höfn.
Ég prófaði hérna áður fyrr mörg svindl og vil taka það fram að það var með vitneskju p1mpa, og ég lét þá vita ef eitthvað af þeim virkuðu, (sem þó nokkuð mörg gera)
Eitt kvöld fyrir ekki löngu síðan þá tengdist ég inn á FF/Grens serverinn og tók demos, svo setti ég inn Nefsvindlið í Quakeinn hjá mér og horfði á þessi demo og hvað skal segja,, OMG? amm, sennilega, því það var ekkert fyndið hvað margir voru GREINILEGA að nota þetta, maður sér það ekki vel nema vera með það innsett sjálfur, að sjá marga “virta” spilara fylgja nefinu 100% eftir á t.d. Urbanturninum, svo sést smettið og BANG,, hausinn af.. og þið getið trúað mér,, þegar maður speccar manninn í nokkur round þá er enginn vafi,
Svo er þetta með wallhackið, allavega það wallhack sem ég prófaði á sínum tíma virkaði þannig að þegar ég setti það í gang þá rauk pingið upp úr öllu valdi, það er ekki nema nokkrir dagar síðan ég skoðaði pingið hjá einum gamalreyndum spilara á server, það rokkaði frá 30 upp í 600, en bara þegar hann stoppaði einhversstaðar útí horni og sneri sér í hringi… spookie.. svo rauk hann beint á staðinn þar sem mótherjinn var og drap hann, þetta er spilari sem er oftast efstur í Frags á serverum,
Speedhack, það kom spilari inn um daginn með þetta hack, allir sáu það en enginn sagði neitt fyrr en MIKO fór að kvarta, (ekki ég?) :).. maðurinn spilaði nokkur round á 300 km hraða, enn og aftur nafn sem er enn að spila á serverunum,
Svo heyrði ég einhversstaðar að það væri komin útgáfa af Ratbot sem kemst frfamhjá reconnectinu, en sel það ekki dýrara en ég keypti það..
það sem ég er mest hissa á er hvað menn í AQ heiminum eru feimnir við að saka aðra um svindl..? hafiði prófað Counterstrike? menn eru á tánum þar gagnvart svindlurum og taka hart á þeim, af hverju? jú, vegna þess að það er sama hvað hver segir það er ekkert gaman að spila á móti einhverjum sem er að svindla,það er ósanngjarnt og skemmir þennan annars ágæta leik.
Og svo í lokin þá er ég viss um að þjóðminjasafnið geymi geimskip í kjallaranum hjá sér… :)<br><br>“Facts are stubborn things”