Já, hýru undirskriftirnar byrjuðu víst allar með…mér.
Dæs, já ég verð að viðurkenna það. Að vísu var $noopy allra fyrstur. Hann tók fram nickið sitt í CS og Dod. Allt í lagi með það. Ég ákvað að slá alla út, og annaðhvort kom mér í eða bjó til djókklön í öllum moddum/leikjum/o.s.frv. sem að enginn nennti að spila (AHL, Opera, stofnaði LAN-q3 clan sem hefur spilað eitt match á móti Hardcore bottum….o.s.frv).
Svo þegar ég var kominn með ca. 16 klön, þar á meðal Hackey Sack clan(stofnað eftir frækileg hackey-sack tilþríf hjá mér, blibb, bbf3 og enzyme á skjálfta), þá fóru allir að herma eftir mér og nokkrum öðrum vinum mínum sem voru í klan-samkeppni við mig. Zyggy er nú einna verstur. Þetta er nú bara orðið hlægilegt.
Ég sá villu míns vegar, fór í undirskriftaafvötnun hjá Sinai, og nú er ég betri maður. En vofurnar fylgja mér enn, á CS-korkum um víðan völl. Ég vona að þeir hverfi von bráðar, enda gengur þetta bara ekki lengur.
<br><br>______________________________
<a href="
http://www.clanlove.com">kk</a> Pikachu