default.cfg er í aðalgagnaskrá Q3A, pak0.pk3 (í baseq3 möppunni). Segi leikurinn að þessi skrá finnist ekki er Q3 installið að öllum líkindum gallað, eða eitthvað á röngum stað (quake3.exe eða pak0.pk3). Athugaðu einnig að working directory sé rétt! Ef þú startar t.d. c:\\quake3\\quake3.exe með einhverju shortcut eða scripti sem ekki breytir current working directory, mun vélin ræsa upp án þess að finna gagnaskrárnar sínar.