Clönum er bannað að recruita, hvaða spilara er frjálst að skipa um clan ef hann vill en þá endilega tala við sína m8s um af hverju hann vilji skipta um clan og gefa góðar ástæður.- <br>Ein spurning til deus og fatal t.d. ekki að ég sé að skjóta á þá á neinn hátt, en hér kemur hún, “af hverju hættu þið í ykkar clani phd ?” og af hverju völduð þið hux. Ef þið eruð ánægðir þar sem þið án efa eruð þá “kewl great” ekki málið en að fara úr clani sem var mjög fínt. En þar sem clana fjöldi er ekki svo mikill hér á skerinu okkar þá verður þetta frekar litlaust þegar einu clönin sem standa eftir eru hux murk ice og k. Satt það verða alltaf einhver minni clön sem geta staðið í þeim en eins og sést hefur á öllum skjalfta mótum þá eru þessi 4 clön næstum alltaf með efstu 3 sætin. Við hljótum að sjá að þetta verður á endanum frekar þreytt, tek sem dæmi um clan sem hefði getað haldið áfram og með æfingu orðið með þeim bestu, SUKK , komnir í murk og Genesis núna, og í einhver önnur líka en þau mega síns lítið á móti þessum stóru clönum. Eitthvað sem ég vildi sjá væri að sjá eitthvurt lið í þessum stóru ice murk hux segja sig úr claninu á friendly nótum og stofna nýtt clan, hvað væri að því, ég ætla að vona að fólk færi ekki að hætta að bjóða þeim lön eða heilsa þeim á götum úti. “the more the merrier” könnumst við allir við, reynum að breiða úr okkur í staðinn fyrir að hópast saman í litla (dare i say leiðinlega, því þeir verða það ef við höfum ekki úrval) hópa.