Fyrst þegar ég heyrði orðið GG hélt ég að það væri fyrir orðið grensan góða. Fyrst þegar ég sá þetta þá var gulag að henda grensu og var að henda grensu og drap sig ásamt 4 teammate-um og sagði þá KaZ[QNI] “GG” og hélt ég að þetta væri “Góð Grensa” eða “GG. Eftir þetta sagði liðsmaður í hinu liðinu ”LOL“ eða eins og ég hélt að það væri ”Lost of lives“ þar sem fimm menn voru dauðir eftir að gulag tók GG. Eftir grensuna skrifaði Gulag ”OMG“ eða ”Ouch my grenade" eins og mér skildist. Er Smith[QNI] reyndi að streifa fram af urban þakinu stóð Jb[QNI] og Smith hrasaði niður, datt og dó og skrifaði “plumm” eða “players like u must move”. Sagði þá Jb “LOL” eða “Lost of lives”. Þá sagði smith “Thurs” eða “The horrible urban roof skills”. Stuttu síðar kickaði Reaper[QNI], Runner[ZooM] til dauða eftir að Reaper hafði skotið Runner í kevlar vestið. Dó þá Runner stuttu seinna en skrifaði “ROFL” síðustu andartökin af lífi hans. “ROFL” myndi þá standa fyrir “Reaper on frag limit”. Svo kláraðist mappið og allir sögðu “GG” að lokum (Góð Grensa) en það meikaði ekki sense, þar sem enginn henti grensu í síðasta roundinu. Á public servers koma þessar skammstafanir oft fyrir en ég sé ekki í hvaða samhengi þær eru skrifaðar, þar sem “GG” sést ekki nema þegar Gulag eða einhver frá pabbaborðinu er inni. Ef þið kunnið réttu skammstafanirnar væri fínt að fá þær hérna inn, þar sem að ég vill ei að quake ferill minn endi eins fljótt og ferill van gogh.
Með von um góð viðbrögð.
A winner never quits and a quitter never wins.