Fyrstu leikirnir í EuroAQ eru að baki. Þetta var heimaleikur (leikirnir fóru fram á server hérna heima) á móti Portugal.
Portugalirnir voru harðir í horn að taka en áttu ekkert í stjörnuprýtt lið Íslands (getur einhver sagt “ping” ? :)
Fyrri leikurinn var á urban og fór 19 - 3 fyrir okkur.
Seinni leikurinn var á tokyo of fór 24 - 6 fyrir okkur.
Leikmenn Íslands í þetta skiptið voru: Slith, HeMan, Core, Anti, Van-GoGh og Reaper.
Nú er bara að standa sig á serverunum í Portugal! :)
GG's strákar. Demo's posted síðar.