Jæja

ég ætlaði mér, eftir að hafa reinstallað quake og sett inn nýja point releashið, að fara á skjálfta serverinn skjalfti2.simnet.is
En serverinn sagði mér alltaf ég hefði einhverja pk3 fæla sem ættu ekki að vera. Ég er bara með þessa pakk fæla sem komu með point releashinu, enga aðra, og ég hefði haldið að það hefði verið nóg. Skjátlast mér, þarf ég að fá einhverja fæla sem einungis reyndir quake“erar” vita af, eða er tölvan mín bara gay? Ég var að vonast eftir að maður gæti komist inná skjálftaserverinn núna þegar maður er að fara að fá sér ADSL, en draumur minn sem hefur alltaf verið drepinn í hvert skipti sem ég hef reynt að fara inná server, ætlar ekki að verða að veruleika. Ég vona að þið vitið hvað ég skal gjöra.