Ég þoli ekki feldlaus (eða semi-feldlaus) dýr. Mér finnst þau bara ljót. Ég þarf að hafa hár út um allt. En ég efast samt ekki um að þetta er örugglega vænsti hundur og til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.
á ekki svona hund og æ mér líður oft voðalega illa þegar ég horfi á þá:S..finnst eins og hundurinn sé algjörlega óvarinn fyrir öllu, verður bara kalt þegar ég horfi á þá.
Þetta er annars mjög sætur hundur en vildi bara óska að hann hefði aðeins fleyri hár á líkamanum, held að honum liði líka betur:)
Hann er undarlegur já, og reyndar finnst mér lítið varið í þessa litlu hunda. Vil alls ekki hafa þá minni en íslenska fjárhundinn. En auðvitað þykir fólki jafn vænt um litla hunda og stóra og allt það. Þetta er bara einhver genískur galli í mér, að vilja hafa hunda svona allavega millistóra. En þetta er örugglega besta skinn. ;)
ég á sjálf chinese crested, ekki hárlausan heldur loðinn :) ég stefni á hárlausan. þessi tegund er yndi, gæti ekki hugsað mér betri hund :) endilega sendu mér skilaboð á link ef þú átt fleiri myndir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..