Mig vantar allar uppl. sem hægt er að fá um west highland white terrier (Westie) og skottis terrier t.d. hvar á íslandi er hægt að fá þessa hunda og hvað þeir kosta.
P.s. Hvernig fær maður mömmur til að vilja fá hund?
Ekki spurning; fáðu lánaðan krúttlegan hvop og sýndu mömmu. Þær eru fáar sem standast yndislega litla hvolpa. En grínlaust þá vill það nú oftast lenda á mömmunum að hugsa um hundana þegar fram líða stundir. Unglingarnir eru svo oft uppteknir að þeir mega ekki vera að fara með hundana út nema svona rétt í byrjun. Því eru það foreldrarnir sem sitja uppi með alla ábyrgð og ummönun hunds. Það er nefnilega ekki nein smá skuldbinding að taka að sér hund og það kostar mikla fyrirhöfn ef vel á að vera. En á móti fær maður líka mikið og í raun miklu meira en það sem maður þarf að leggja í það. Því segi ég að annaðhvort veð'ur að bíða þar til þu ert orðin stór eða standa við þá skuldbindingu sem fylgir því að eignast lifandi dýr.<br><br>Pank
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..