Já en þú átt líka að þekkja þinn hund. Og svo er mjög mikilvægt að kynna sér ATFERLI hunda, þá er hægt að lesa líkamstöður og merki sem þeir eru að gefa frá sér. Tíkurnar mínar urra eins og motherfuckers í leik, þær urra þegar maður er að klappa þeim og þær urra þegar þú talar við þær, það er bara spjall ;) þær eru bara að segja mér hvernig dagurinn var og kvarta hehe ;) en hinsvegar heiri ég líka um leið og þær eru að Urra as in reiðar.. En það kemur aldrei á mig, eða neinn sem á það ekki skilið. Þegar þær hitta nýja hunda þa halupa þær urrandi um, fólk oft verður smeikt (skiljanlega) en þá útskýri ég bara að þær eru ekki að meina þetta illa, sem og fólk fattar, en munurinn á rottweiler leik urri og “grimmu” urri er svakalegur ;) og fer ekki framhjá neinum þegar hann þekkir til :p og það getur hver rottweiler eigandi sagt þér:)
Ég þekki mikið til hunda og ég hef ráðfært mig við marga hundaþjálfara, allir segja það sama, ekki banna urrið, þetta er bara þeirra tjáningarleið. Og er óþarfi að bæla hana niður af eingum ástæðum ;)
en með upphafs inleggið, hvar býrðu ? það er lítið sem þú getur gert því miður í þessum málum annað en að senda á yfirvöld bréf um að þetta sé skuggarlegur náungi og þú hafir áhyggjur af því að það sé verið að nota hundinn í óæskilega hluti. EN passaðu þig samt, ég á 2 rottweiler hunda, ég er með 7 tattoo, kallinn minn er með nokkur og við fáum augnaráð frá fólki fyrir það eitt að vera með þessa tegund. Það er hell að reyna að finna íbúð með þessa hunda því maður þarf að útskýra að maður sé ekki handrukkari, dópisti osf. útaf fordómum. Þannig vertu viss um að þessi aðili eigi þetta orð á sig skilið ;)