Mér finnst alltaf mjög skemmtilegt að sjá þegar fólk skrifar svona lagað..
Þetta eru einfaldega ekki hundar fyrir byrjendur.
Hvernig hundar eru fyrir byrjendur..? Það ætti rauninni frekar að segja: Mjög krefjandi tegund!
Ég á tvo Siberian Husky (sem er líka tegund sem er “ekki góð fyrir byrjendur”) en samt hafði ég aldrei átt hund áður og gengur bara mjög vel með þessa tvo! Því ræktandinn einfaldlega útskýrði kosti og galla tegundarinnar, við fórum til hennar og vorum í kringum hundana, lásum okkur til á netinu um tegundina og þjálfun á hundum og svo fórum við á hundanámskeið. Svo að þetta er í rauninni mun frekar þannig, að kaupandinn þarf bara að gera sér vel grein fyrir því að hann er með krefjandi tegund í höndunum sem hlýðir kannski ekki í fyrsta skiptið og mögulega ekki heldur í 2 og það 3.. ;) og þolinmæði skiptir MIKLU máli! :)
Annars er ég ekki hér til að búa til rifrildi, heldur einfaldlega að útskýra að mér finnst þetta “Ekki hundar fyrir byrjendur” máltæki bara ekki eiga rétt á sér :-S