Ég myndi bara umfram allt læra rosalega vel hvernig á að taka á móti hvolpunum :) Talaðu við dýralækni og fáðu allar upplýsingar.
Annars er þetta jú mjög algeng blanda og skemmtileg. Þetta verða hressir hundar, það verður fjör á heimilinu þínu síðasta mánuðinn ;) Labradorinn er góður veiðihundur, getur verið erfiður fyrstu árin og þarf góða þjálfun. Border collieinn þarf mikla hreyfingu, er mjög vinnuglaður og skemmtilegur hundur. Það er svo bara mismunandi hvernig hvolparnir verða, kannski verður labbinn sterkari í einum og collieinn sterkur í öðrum, svo kannski alger blanda í enn einum.
Er mamman labrador eða border collie?