geltir voffinn þó að hann sé settur þá bara inn í annað herbergi meðan ryksugað er? kannski hægt að láta hann þá út í garð eða gefa honum gott bein á meðan eða eitthvað skemmtilegra en að gelta á ryksuguna, vegna þess að honum finnst það örugglega líka bara fyrirtaks skemmtun þó þú sjáir ekki það sjónarmið ;) t.d. hann geltir á skrímslið (þú slekkur á því), skrímslið varð svo hrætt við hann að það hætti, voffinn voða hetja vííí. voffinn minn er allavega skíthrædd við ryksuguna og ég á helst að halda á henni og ryksuga á meðan sem er vonlaust mál þar sem hún er 13 kg og ég mjög langt frá því að vera vöðvatröll, lausnin sem ég fann allavega er að láta hana inn í búrið sitt (þar sem hún finnur til öryggis og fer að sofa) meðan ég ryksuga og þríf í ró og næði. allir voða happy :)
kv. Pooh