Ég veit að þú meinar þetta mjög vel og allt það en ég er ekki svo viss um að þetta sé góð hugmynd :/ Ég vill alls ekki vera með nein leiðindi bara gefa þér ráð. Veit ekki um marga Faxhunda eigendur sem myndu taka þetta í mál, allavega ekki í HRFÍ.
Svo er ekki talandi um allt offramboðið á blendingum í dag. Ég hefði nú ekkert á móti þessu ef þú ætlar að halda öllum hvolpunum sjálf en eins og staðan er í dag er erfitt að koma út hreinræktuðum hvolpum með ættbók meira að segja
En ég vill ekki vera leiðinlega manneskja sem baunar á þig öllu því neikvæða sem hægt er að finna varðandi þessa pælingu hjá þér :) það er náttúrulega yndisleg upplifun að vera með hvopla og maður elskar hverja sekúntu með þeim.
vill bara gefa mitt álit á þessu og í heildina finnst mér þetta ekki sniðugt en það er lítið sem ég get sagt til að breyta ákvörðun þinni þannig ég segi bara: gangi þér allt í haginn með þetta :)