tíkin mín er bolabítsblendingur, og hún hrítur svona smá, örugglega bara svipað og sum börn, ekki beint hrotur heldur sona þungur andadráttur. hún er ofsalega orkumikil þegar hún er vakandi en á móti sefur hún mjög mikið enda ekki nema 3ja mánaða. held að hún fái brussu eðlið frá pabba sínum. hún er alger skriðdreki. þarf helst 40kg hund til að leika við hehehehe. annars bara óvart leggst hún ofan á hinn hundinn og leikur allof gróft. samt nátturulega bara hvolpaeðlið að fatta ekki alveg hvar mörkin á milli leiks og of miklilla láta eru. hún er líka alger nagari en það reddast með svínseyrum og beinum. annars er henni best lýst held ég sem frekar orkumikil og ofsa glöð að sjá allt nýtt fólk. mætti stundum halda að ég væri ekkert skemmtileg hehehehe. semsagt þeir sem koma í heimsókn og leika helling við mann eru skemmtilegastir, þeir skamma mann heldur aldrei ;)