Vitleysingar telja þessa hunda hættulega og banna þessa hunda af því að vitleysingar ala þá vitlaust upp… sem er alger vitleysa. Ég hef margsinnis hitt Pittbull hunda og á sjálfur Dobermann hund og þessir hundar ráðast aldrei (nema þeir séu illa ræktaðir með slæm gen eða illa upp aldir) á fólk eða aðra hunda (kk fíla samt yfirleitt ekki aðra kk sem er hundum eðlislægt) séu þeir rétt uppaldir. Dobermann hundar eru vel þekktir fyrir að vera hlýðnir og að þeir hafa enga þörf fyrir að láta aðra vita hversu “stórir og sterkir” þeir eru nema náttúrulega þegar þeir neyðast til þess (þeir eru líka þekktir fyrir að verja sig og sína fram í rauðann..).
Samkvæmt allri tölfræði og könnunum eru Dobermann og Pittbull mjög neðarlega á listanum yfir hvaða hundar ráðast mest á fólk. En það þykir meira fréttnæmt þegar þeir gera það og ef þeir eru vitlaust uppaldir að þá geta þeir valdið miklu manntjóni en ekki eins mikið og td. illa uppalið fólk… eigum við þá ekki að banna illa uppalið fólk?
Þetta meikar sens.