Hann sefur útum allt, en yfirleitt vill hann sofa inni í svefnherbergjunum. En best af öllu finnst honum ef allir í húsinu eru með svefnherbergisdyrnar opnar svo hann geti fylgst með öllum, eða svo virðist allavegana vera. Hann virðist kunna best við sig þar sem hann getur fylgst með öllu, hann er voðalegur verndari í sér og það hefur sýnt sig gegnum tíðina. Hann á gamla dýnu og gamla sæng sem hann sefur samt oftast á, við hliðina á rúminu, en stundum skríður hann uppí. Hann er aldrei lengi uppí í einu, því það er eiginlega of heitt fyrir hann, því feldurinn hans er svo þykkur :) En hann er svo mikil kelurófa að hann verður alltaf helst að vera nálægt fólkinu sínu.